Frá og með deginum í dag, 29. júní, verður ekki lengur boðið upp á innstillingar og almenna þjónustu í tengslum við kæfisvefnsvélar við Sjúkrahúsið á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Sjúkrahússins.
Þeim sem þurfa á þjónustunni að halda er bent á Svefnrannsóknadeild LSH í Fossvogi, sem áfram sér um að útvega kæfisvefnsvélar og varahluti. Vonir eru bundnar við að þjónustan verði aftur í boði með haustinu og verður það auglýst síðar.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?










