Gamli vegurinn yfir Vaðlaheiði hefur verið opnaður fyrir sumarið. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Vaðlaheiðarganga.
Vegurinn er malarvegur en vel fær öllum ökutækjum undir 5 tonnum.
Við bendum vegfarendur þó að aka af gætni og halda sig frá vegköntum þar sem sums staðar er enn bleyta og jarðvegurinn getur verið mjúkur.
Einnig hefur fé verið sleppt á heiðina. Gætum því sérstaklega að kindum og lömbum sem geta verið á eða við veginn. Hægur akstur og tillitssemi gagnvart dýralífinu gerir ferðina öruggari fyrir alla.
Vaðlaheiðin er ekki bara leið á milli staða – hún er áfangastaður í sjálfu sér. Taktu þér tíma, slökktu á útvarpinu, opnaðu gluggann og leyfðu náttúrunni að njóta sín. Hlustaðu á lækjarniðinn, fuglasönginn og jarmið í lömbunum.
Og ekki gleyma að stoppa á öruggum stað og njóta hins stórbrotna útsýnis yfir Eyjafjörð og Fnjóskadal.










