Á árunum 1913–1914 lét þýski auðmaðurinn George H. F. Schrader reisa sérstakt hús á Akureyri sem skjól fyrir hesta og aðkomufólk. Schrader var kaupsýslumaður og hafði auðgast mjög í Bandaríkjunum áður en leið hans lá til Akureyrar.
Húsið nefndi hann Caroline Rest, eða Karólína Rest, eftir móður sinni.
Þegar best lét var þar pláss fyrir allt að 130 hesta og á efri hæð hússins voru herbergi fyrir um tuttugu manns, eldhús og síðar hlaða og geymsla fyrir reiðtygi. Á þessum tíma tíðkaðist að láta hestana standa úti í öllum veðrum á meðan eigendurnir sinntu erindum sínum. Schrader og Karólína Rest voru því í raun langt á undan sinni samtíð.
Eftir að Akureyrarbær keypti húsið árið 1947 féll það smám saman í niðurníðslu og var að lokum rifið árið 1979. Í dag er bílastæði þar sem þessi merka bygging stóð.













