Í gær var haldin hátíðleg móttaka í Ráðhúsi Akureyrar fyrir starfsfólk sveitarfélagsins sem hafði um síðustu áramót náð þeim merka áfanga að hafa starfað hjá Akureyrarbæ í 25 ár. Alls voru 17 starfsmenn heiðraðir við þetta tilefni. Sagt er frá á vef Akureyrbæjar.
„Starfsfólkið kemur úr fjölmörgum einingum bæjarins, en flest þeirra starfa við leik- og grunnskóla Akureyrar. Með þessari móttöku er þeim þakkað fyrir ómetanlegt framlag sitt til samfélagsins í gegnum árin,“ segir í tilkynningju bæjarins.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?










