Sigríður Stefánsdóttir var kjörin formaður Rauða krossins á Íslandi til næstu fjögurra ára á aðalfundi félagsins laugardaginn 9. maí. Sigríður var áður varaformaður en hefur verið starfandi formaður síðan um mitt síðasta ár er þáverandi formaður, Silja Bára Ómarsdóttir, lét af formennsku er hún tók við stöðu rektors Háskóla Íslands. Þá var Jón Ásgeirsson kjörinn varaformaður á fundinum. Hann hefur verið starfandi varaformaður frá því í júní í fyrra.
Sigríður er með BA-próf í almennum þjóðfélagsfræðum frá Háskóla Íslands og framhaldsnám í Þýskalandi í stjórnmálafræði. Hún hefur einnig lokið kennsluréttindanámi. Sigríður kenndi félagsfræði og stjórnmálafræði við Menntaskólann á Akureyri auk þess að sinna stjórnunarstörfum hjá Akureyrarbæ á árunum 1998 til 2017. Þá var hún bæjarfulltrúi og bæjarráðsmaður á Akureyri á árunum 1984-1998 og forseti bæjarstjórnar í tvö ár. Hún átti sæti í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjölda nefnda og ráða á sveitarstjórnarstigi og hjá ríkinu. Sigríður hefur starfað sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum við Eyjafjörð frá árinu 2017.
„Félagið okkar er öflugt og stöndugt og er alltaf reiðubúið að laga sig að breyttum aðstæðum,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins, er hún fór yfir skýrslu stjórnar á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi sem fram fór laugardaginn 9. maí. „Við stöndum vörð um fólk þegar mest á reynir, bæði hér heima og víða um heim.“
Í erindinu kom hún m.a. inn á sjúkrabíla landsins en Rauði krossinn á og rekur allan sjúkrabílaflotann. „Á síðustu árum hafa mörg hundruð milljónir farið í endurnýjun flotans sem er þó ekki að fullu lokið,“ sagði formaðurinn um þetta verkefni sem hefur fylgt félaginu nánast frá stofnun. „Stjórn félagsins ræðir það reglulega hvort félagið nálgist endastöð í þessu verkefni. Mögulega nálgast sá tímapunktur að rétt sé að afhenda stjórnvöldum flotann, með sanngjörnu endurgjaldi þó. Við erum svo sannarlega tilbúin til samtals.“
Ný stjórn Rauða krossins á Íslandi er að loknum aðalfundi árið 2026 er skipuð:
Sigríður Stefánsdóttir formaður, Jón Ásgeirsson varaformaður, Arnbjörg Sveinsdóttir, Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir, Herbert Eyjólfsson, Ingibjörg Ásta Bjarnadóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Ómar Valdimarsson, Óttarr Proppé, Sigurður Ólafsson og Silja Ingólfsdóttir.
Varamenn: Salvör Ísberg og Árni Jóhannsson.










