Foreldramorgnar hjá Emil & Línu á Glerártorgi alla miðvikudaga í júlí

Foreldramorgnarnir hjá Emil & Línu á Glerártorgi hafa farið afar vel af stað og verið einstaklega vel sóttir. Vegna góðra viðtaka verður áfram boðið upp á foreldramorgna alla miðvikudaga í júlí og eru allir velkomnir.

Foreldramorgnarnir eru hugsaðir sem notaleg samverustund fyrir fjölskyldur þar sem foreldrar og börn geta komið saman, fengið sér kaffi og bakkelsi, leyft börnunum að leika sér og notið þess að eiga góða stund saman yfir sumarið. Viðburðirnir henta jafnt foreldrum í fæðingarorlofi og foreldrum með börn sem eru komin í sumarfrí og vilja finna sér skemmtilegt og afslappað fjölskyldustopp. 

Á meðan foreldrar njóta kaffibolla geta börnin leikið sér í leikhorni sem sett hefur verið upp við verslunina. Þá gefst einnig tækifæri til að skoða fjölbreytt vöruúrval Emil & Línu og þeirra vörumerkja, þar á meðal Emil & Lína Born in Iceland, Mayoral, iCandy og ZO-ON.

Foreldramorgnarnir eru ekki alltaf eins en reglulega eru sérstakar kynningar og viðburðir á dagskrá. Nú þegar hafa gestir fengið að njóta kynningar frá Blush, vagnakynningar frá iCandy, Grautasmakks frá WorldClass og kynningu á WorldFit mömmur. Einnig hafa stundum verið sérstök tilboð og afslættir fyrir þá sem mæta á morgnana.

Markmið foreldramorgnanna er einfaldlega að skapa hlýlega stemningu, efla samfélagið og bjóða fjölskyldum upp á notalega samveru yfir kaffibolla og leik.

Foreldramorgnar hjá Emil & Línu
📍 Glerártorg, Akureyri – fyrir framan Emil&Línu/ Zo-on

🕙 Alla miðvikudaga í júlí kl. 10:00–12:00
☕ Kaffi og bakkelsi í boði
🧸 Leiksvæði fyrir börnin
💛 Allir velkomnir

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!