Tímafjöldi vinnustunda í stuðningsþjónustu Akureyrarbæjar hefur aukist verulega hjá notendum sem fá bæði persónulega þjónustu og þrif. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Þar segir að aukninguna megi rekja til fjölgunar aldraðra, 80 ára og eldri, sem dvelja lengur heima. Árið 2024 fengu 535 heimili á Akureyri stuðningsþjónustu en árið 2025 voru þau 569. Vinnustundir jukust á sama tíma úr 21.565 stundum árið 2024 í 24.752 stundir árið 2025.
Ráðgjafar sinna mati á þörf fyrir þjónustu. Um er að ræða umsóknir um stuðningsþjónustu, akstursþjónustu, heimsendan mat og ráðgjöf. Tæp 50% aukning hefur verið á mati í stuðningsþjónustu frá 2021. Þá voru heimilin 209 en árið 2025 voru þau 385. Að sama skapi hefur orðið mikil aukning á ráðgjöf iðjuþjálfa. Árið 2021 fengu 55 heimili ráðgjöf samanborið við 128 heimili árið 2025.
Stuðningsþjónustan sér einnig um heimsendingu matar til þeirra sem vegna veikinda eða skertrar færni geta ekki eldað sjálfir. Alls nýttu 140 heimili sér heimsendan mat á árinu 2025. Af þeim voru 56 einstæðir karlar, 57 einstæðar konur og 27 hjón. Fjöldi heimila og seldra matarbakka hefur þó dregist saman frá árinu 2023. Mest hefur fækkunin verið hjá einstæðum konum, úr 100 bökkum árið 2022 í 57 árið 2025.
Í umfjöllun bæjarins segir að markmið stuðningsþjónustu sé að efla notendur til sjálfsbjargar og sjálfræðis og gera þeim kleift að búa sem lengst á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður.










