Dalvíkingurinn Ómar Dúason stofnaði hljómsveitina Mannhatur í lok ársins 2025. Mannhatur er einstaklingsverkefni Ómars sem spilar á öll hljóðfæri í sveitinni ásamt því að syngja. Hann stefnir á að gefa út fyrstu smáskífu Mannhaturs í ár og nýverið kom út fyrsta lagið af skífunni, Upphaf.
Ómar er fæddur á Dalvík árið 1986. Hann flutti til Akureyrar árið 2008 en hafði þá verið partur af þungarokks grasrótinni á Akureyri í þrjú ár. Hann stofnaði hljómsveitina Amor e Morte með vini sínum Benedikt Snædal og spilaði á gítar samhliða bróður sínum Sævari í hljómsveitinni Aten sem meðal annars tók þátt í Músíktilraunum 2006. Þá hefur hann verið bassaleikari í dalvísku svartmálms hljómsveitinni Finngálkn síðan 2007.
Ómar segir að hann hafi ekki tekið mikinn þátt í lagasmíðum í Finngálkn og að Mannhatur sé hans leið til þess að koma sínum hugmyndum í á framfæri. Lagið Upphaf er eins og fyrr segir fyrsta lagið af væntanlegri smáskífu Mannhaturs sem er nú í vinnslu og Ómar vonast til að komi út á þessu ári.
Hann segir nafnið og textann eiga við um upphaf endaloka mannkynsins og hvernig öll ummerki og áhrif mannkynsins muni upprætast og falla í gleymsku. Í laginu syngur Unnur Björk Jóhannsdóttir sem gestasöngvari. Unnur er þekkt fyrir söng sinn í hljómsveitum á borð við Svartþoka, Norn og dauðarokks hljómsveitinni Kvarv.
„Þar sem söngurinn í Mannhatur almennt tjáir mikla reiði og hatur þá kemur hún inn með sinn eigin hljóm sem einkennir sársauka og kvöl sem gefur laginu sérstaka andstæðu,“ segir Ómar.
Lagið upphaf má hlusta á í spilaranum hér að neðan:










