Sjókvíaeldi í Eyjafjörð

Eyjafjörður býr yfir einstökum tækifærum til uppbyggingar á hátæknivæddu sjókvíaeldi með ströngustu umhverfiskröfur að leiðarljósi. Með því að nýta nýjustu tækni í bland við hagstæð náttúruleg skilyrði er hægt að skapa öflugt atvinnulíf sem byggir á sjálfbærni og vísindalegri þekkingu.Efnahagslegur ávinningur yrði gríðarlegur, talinn í tugum og milljarða og myndi skapa fjölda beinna og afleiddra starfa.

Samspil lokaðra og opinna kvía

Lykillinn felst að mínu mati á samspili lokaðra og opinna kvía. Það hefur verið ör þróun í smíði lokaðra eldiskvía síðustu árin og allt stefnir í að þessi tækni verði að öllum líkindum komin í víðtæka notkun innan fárra ára. Í þessu kerfi yrði yngsti fiskurinn alinn fyrst í lokuðum kvíum þar sem hann er fullkomlega varinn fyrir laxalús og öðrum utanaðkomandi ógnum á sínu viðkvæmasta vaxtarskeiði. Þegar fiskurinn hefur náð tilskildri stærð ( ca. 1 kg)  er hann fluttur í hefðbundnar opnar kvíar þar sem hann er alinn fram að slátrun. Þessi leið lágmarkar umhverfisáhrif og tryggir hámarks velferð dýranna.

Kjöraðstæður og öflugir innviðir

Eyjafjörður er frá náttúrunnar hendi að mínu mati  kjörinn til fiskeldis. Hagstæðir straumar tryggja stöðuga endurnýjun sjávar, nægilegt dýpi gefur rými fyrir lokaðar kvíar sem þurfa töluvert meira dýpi en opnar kvíar og lítill öldugangur skapar öruggt starfsumhverfi bæði fyrir starfsfólk og búnað. Að auk eru líklegast hvergi sterkari innviðir og meiri þekking á landinu til að þjónusta svona starfsemi á öllum sviðumn.  Í Eyjafirði er gríðarleg þekking og reynsla í þjónustu við sjávarútveg, tæknileg og fóðurframleiðsla, sem er undirstaða þess að hægt sé að byggja upp nýja atvinnugrein með skjótum og skilvirkum hætti. Þetta myndi líka efla Akureyrarflugvöll enn frekar með reglulegum útflutingi.

Vísindaleg staðfesting á umhverfisöryggi

Algengur ótti við umhverfisáhrif sjókvíaeldis á firði á sér ekki alltaf stoð í raunveruleikanum þegar rétt er staðið að málum. Norska hafrannsóknastofnunin (Havforskningsinstituttet) hefur t.d.  staðfest með víðtækum rannsóknum yfir fleiri ár að sjókvíaeldi hafi almennt lítil neikvæð áhrif á ástand fjarða í Noregi, þar sem aðstæður eru um margt svipaðar og í Eyjafirði. Með nútíma vöktun og tækni er hægt að tryggja að vistkerfi fjarðarins og aðliggjandi vatnsfalla  haldist í jafnvægi, samhliða öflugri matvælaframleiðslu.

Sjókvíaeldi í Eyjafirði er því ekki aðeins spurning um atvinnusköpun, heldur tækifæri til að leiða þróunina í átt að sjálfbærari nýtingu auðlinda hafsins.

Sjókvíaeldi er sú matvælaframleiðsla sem nýtir landsvæði á skilvirkastan hátt, með litla notkun á orku,  ferskvatni og skilar litilu kolefnisspori.  Sem dæmi þar um þá raða alþjóðlegar sjálfbærnivísitölur norskum sjókvíaeldisfyrirtækjum reglulega sem sjálfbærustu matvælaframleiðendum heims.

Sjókvíaeldi er sjálfbærari framleiðsla samanborið við aðra matvælaframleiðslu og svo sannarlega samanborið við aðra iðnaðarstarfsemi á landi og í sjó

Því undrar mig nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga að þau framboð sem boða aukna atvinnu og nýja atvinnsustefnu skili hálf kveðinni vísu í þessum efnum. Ég myndi vilja sjá skýra pólitíska sýn og stefnu um að þetta séu hlutir sem við viljum skoða ítarlega og af alvöru.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!