Popparasögur: Hefur aldrei liðið betur

Erna Hrönn Ólafsdóttir, tónlistarkona, segir að tónlistarferill hennar hafi í raun hafist á Akureyri þar sem hún steig sín fyrstu skref í tónlistinni og fann snemma að hún ætlaði sér á svið. „Ég er náttúrlega ekki nema þriggja ára þegar ég segi, ég ætla að vera leikkona og söngkona þegar ég verð stór,“ segir hún í viðtali við hlaðvarpið Popparasögur, hlaðvarp sem framleitt er í Eyjafirði þar sem Erna Hrönn er fædd og uppalin.

Níu ára gömul hóf hún nám í Tónlistarskóla Eyjafjarðar hjá Þuríði Baldurs og var þar í tíu ár. Síðar fann hún þó að stærri tækifæri biðu annars staðar. „Ég var orðin tveggja barna móðir, 22 ára og þá fór ég aðeins að velta fyrir mér, hvað ætlarðu að gera? Ég fann svolítið á mér að tækifærin væru meira kannski fyrir sunnan,“ segir Erna Hrönn.

Alltaf haft mikla trú á mér

Annar tónlistarmaður á Norðurlandi hefur haft mikil áhrif á feril Ernu Hrannar en það er Friðrik Ómar Hjörleifsson. Leiðir þeirra lágu fyrst saman í söngkeppni í Sjallanum á Akureyri  þegar þau voru unglingar sem Hemmi Gunn, Pétur Kristjáns og Ómar Ragnarsson stóðu fyrir. Þar sungu þau bæði sama lagið en hvorugt vann keppnina.

Síðar áttu þau eftir að vinna náið saman. „Hann hefur alltaf haft mikla trú á mér og verið góður vinur minn,“ segir Erna en samband þeirra þróaðist enn frekar þegar þau störfuðu bæði á FM Akureyri ásamt Heru Björk. Hún segir Friðrik enn í dag vera einn af sínum nánustu vinum. „Við erum oft eins og systkini, við rífumst náttúrulega og alls konar en hann á alltaf sérstaka staðinn í mínu hjarta.“

Nóg að gera með Hr. Eydís

Í dag er Erna Hrönn meðal annars í mikilli keyrslu með 80’s-hljómsveitinni Hr. Eydís sem hefur vakið mikla athygli undanfarin misseri. „Þetta eru ekki bara tónleikar og ekki bara partí heldur bæði,“ segir Erna.

Eftir að hafa farið í gegnum andlega og líkamlega erfiðleika á síðustu árum segist Erna vera á góðum stað í dag. „Mér hefur aldrei liðið betur,“ segir hún og bætir við að hún sé nú að vinna markvisst í eigin efni. Framtíðin sé þó ekki skipulögð langt fram í tímann. „Ég er eiginlega ekkert að líta mikið meira fram í tímann en eina viku,“ segir hún og hlær. „Líf mitt er ein óvissuferð. Ég lifi bara þannig og bara spennt fyrir að sjá hvað er að fara að gerast næst.“

Hlustaðu á viðtalið:

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!