Bjarni Þór Ævarsson er 25 ára Akureyringur og sjálflærður forritari. Nýjasta verkfni hans er appið AllergyID, áður bjó hann til appið Sagan þín sem er stafrænn enduminningarvettvangur eins og hann kallar það og sömuleiðis rak hann BB bakstur sem var jólabakarí sem Kaffið fjallaði um. Nú einbeitir hann sér að AllergyID, en hvað er AllergyID?
AllergyID er farsímaforrit sem býr til stafræn ofnæmiskort. Þú velur ofnæmin og/eða matarvenjur þínar, stillir hversu alvarlegt hvert þeirra er og appið býr til skýrt kort sem þú getur deilt hvar sem er til dæmis á veitingastað, í matarboði hjá vinum, hjá foreldrum bekkjarfélaga barnsins þíns eða á ferðalagi erlendis.
„Þetta er ekki bara ferðaapp. Þetta er daglegt öryggistól. Foreldri sem er að senda barnið sitt í afmælisveislu getur deilt ofnæmiskortinu með gestgjafanum fyrirfram og þá vita allir nákvæmlega hvað barnið getur ekki borðað, hversu alvarlegt það er og hvað á að gera ef eitthvað fer úrskeiðis. Sama gildir ef þér er boðið í mat hjá nýjum kunningja eða ert á veitingastað þar sem starfsfólkið talar annað tungumál,“ segir Bjarni.
Þegar Bjarni hóf þetta verkefni var hann með 63 ofnæmisvalda og 15 tungumál. Eftir prófanir, af 66 Íslendingum, kom í ljós að það var einfaldlega ekki nóg. Ein kona var með nikkelofnæmi og margir vita ekki einu sinni að það geti tengst mat. Annar prófari var með ofnæmi fyrir graskersfræjum og enn annar vildi sérstakan flokk fyrir mygluosta vegna penicillínofnæmis. Nú inniheldur appið 700 ofnæmisvalda í 41 flokkum og styður 35 tungumál. Appið fór opinberlega á markað á bæði App Store og Google Play í lok apríl síðastliðinn.
Bjarni segir þetta vera persónulegt fyrir sig á tvo vegu: „Ég er sjálfur með fæðuofnæmi og hef upplifað hversu erfitt það getur verið að koma ofnæminu á framfæri, bæði erlendis eða þegar þér er boðið í mat og vilt ekki vera til vandræða. Það er óþægilegt að þurfa alltaf að útskýra sig og stundum vantar fólk orðin, sérstaklega á öðru tungumáli. En ég sá þetta líka frá hinni hliðinni þar sem ég starfaði sem kokkur og sá ferðamenn reyna að útskýra ofnæmin sín. Þeir bentu á símann, notuðu hendurnar og vonuðu bara það besta. Ég vissi að það var til betri lausn en það átti bara eftir að búa hana til.“
Tungumálaörðuleikar eru heldur ekki bara vandamál erlendis heldur segir Bjarni að einn af þeim sem prófaði hafi lent í því að starfsfólk á bensínstöð hafi ekki skilið hann en með appinu hafi hann getað útskýrt ofnæmi sitt á eggjum fyrir starfsfólkinu. Bjarni segir einnig að vandamál geti líka oft verið vegna krossmengunar því ef sömu áhöld eru notuð í mat sem veldur ofnæmi þá getur það valdið viðbrögðum hjá fólki. Þess vegna sýnir AllergyID ekki bara ofnæmið heldur líka hversu alvarlegt það er með tilliti til krossmengunar.
Appið tekur einnig tillit til fólks með einhverfu eða er skynsegið. „Margir eiga erfitt með ákveðna áferð á mat, lykt, eða bragð. Þetta er ekkert sem Google Translate getur hjálpað þér að útskýra á japönsku. Svo við bættum því við vegna þess að AllergyID á að vera lausn fyrir alla sem þurfa að koma upplýsingum um matarþarfir á framfæri ekki bara þá sem eru með algengustu eða alvarlegustu ofnæmin.“
Bjarni segir viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð og segir hann frá nokkrum hrósum frá fólkinu sem prófaði appið en ein manneskja sagði: „Ég hef alltaf eytt tíma í að skrifa texta fyrir veitingastaði á viðkomandi tungumáli þegar ég fer erlendis. Ég vona að þetta app komi í staðinn.”
Framtíðarsýn Bjarna er að AllergyID verði alþjóðlegur staðall í hverdagslífinu, hvort sem það er í afmælisveislum eða á veitingastöðum erlendis. Stóra tækifærið liggi svo í því að stofnanir og fyrirtæki geti skannað QR-kóða og séð allar nauðsynlegar upplýsingar á sínu tungumáli. Við byrjum á Íslandi en ætlum að leysa þetta vandamál á heimsvísu.





