Nemendur í Stórutjarnaskóla færa barnadeild SAk fallega gjöf

Nemendur í 5. og 6. bekk í Stórutjarnaskóla tóku síðastliðið haust þátt í Bókmenntahátíð barnanna, þar sem nemendur sömdu og skrifuðu sínar eigin bækur. Bækurnar voru síðan seldar í desember ásamt verkum nemenda úr öðrum skólum. Nemendur ákváðu að ágóðinn af sölu bóka sinna, sem nam rúmlega 300.000 krónum, myndi renna til barnadeildar Sjúkrahússins á Akureyri. Jafnframt vildu nemendur gefa deildinni eitt eintak af hverri bók, með von um að sjúklingar gætu notið þeirra. Greint er frá á vef SAk.

Gestur Guðrúnarson, þjónustustjóri á SAk, heimsótti nemendur og tók fyrir hönd barnadeildar SAk á móti þessari fallegu gjöf nemenda: „Það var virkilega gaman að fara í heimsókn í Stórutjarnaskóla og hitta þessa flottu nemendur. Þetta er sannarlega yndisleg gjöf sem við á sjúkrahúsinu erum þakklát fyrir.“


Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!