Víðavangshlaup Íslands hlaupið í Kjarnaskógi

Á morgun, laugardaginn 17. október, verður Víðavangshlaup Íslands hlaupið í Kjarnaskógi. Víðavangshlaup Íslands var fyrst haldið árið 1948 og á hverju ári frá 1978. Hlaupin eru oftast á bilinu 1,5-10 km og hringurinn sem hlaupinn verður í Kjarnaskógi er 1.650 km. Hringurinn er hlaupinn misoft eftir aldursflokkum en sex sinnum á Íslandsmeistaramóti 20-40 ára. Upphafs- og endamörk eru við Kjarnavöll nærri Múmínhúsinu. Eftir hlaup verður boðið upp á heitt kakó
Samhliða Víðvangshlaupi Íslands verður hlaupið í opnum flokki fyrir þau sem vilja skokka hringinn í fallegu haustveðri. Á vef Akureyrarbæjar kemur fram að mótshaldarar telji að Kjarnaskógur henti afar vel fyrir víðavangshlaup og að leiðin sé stórskemmtileg, farnir verði mjúkir skógarstígar, nánast aldrei á jafnsléttu, og margar hlykkjur á leiðinni þannig að fólk sjái reglulega til þeirra sem eru annaðhvort langt á undan eða langt á eftir í brautinni. „Upplifunin verður því eins og maður sé að hlaupa með miklu fleirum en maður gerir vanalega í venjulegu götuhlaupi,“ segir Þorbergur Ingi Jónsson mótsstjóri.
Tengdar greinar
Uppfært: 16. október 2026




-800x450.webp&w=1920&q=75)
