Leyni verzlun hefur opnað
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Vikar Mar deildi á Facebook-síðu sinni að Leyni verzlun hefði opnað fyrr í dag. Verslunin er staðsett í Brekkugötu 1b við Ráðhústorgið og af myndum að dæma verður úrvalið fjölbreytt. Helgi Pétur Davíðsson sést á myndinni standa vaktina við afgreiðsluborðið.
Miðbærinn hefur verið án verslunar í þónokkurn tíma eða síðan 2012 þegar 10-11 lokaði dyrum sínum. Þó var um tíma sérverlsun í húsnæði Taste sem var þó ekki lengi starfandi.


Tengdar greinar
Uppfært: 21. nóvember 2026










