Yfirlýsing bæjarstjórnar Akureyrarbæjar
.webp&w=3840&q=75)
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar gaf út fyrr í dag yfirlýsingu vegna sjóslyssins á miðvikudag þar sem Jökull ÞH fórst. Yfirlýsinguna má lesa hér fyrir neðan:
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar vottar aðstandendum þeirra sem fórust í sjóslysinu innilega samúð. Hugur okkar er hjá fjölskyldum þeirra og öllum sem slysið snertir. Bæjarstjórn þakkar einnig viðbragðsaðilum fyrir það þrekvirki sem þar var unnið.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í dag um uppbyggingu þyrluskýlis á Akureyri og að fjórða þyrla Landhelgisgæslunnar verði staðsett hér er mikilvægt skref í þágu aukins öryggis og bættrar viðbragðsgetu á Norður- og Austurlandi.
Bæjarstjórn mun leggja sitt af mörkum til þess að uppbyggingin geti gengið vel og leggur áherslu á að aðstaðan komist í gagnið eins fljótt og unnt er.
Tengdar greinar
Uppfært: 27. nóvember 2026





