Skógræktarfélag Eyfirðinga öðlast öflugt brunavarnartæki

Skógræktarfélag Eyfirðinga greindi frá því á Facebook síðu sinni síðastliðinn föstudag að félagið hafi fjárfest í öflugu nýju brunavarnartæki. Um er að ræða haugsugu af Joskin Alpina gerð sem kemur frá Sviss og hefur nú hlotið nafnið „Ungfrú Stútfríður.“ Félagið fékk hana afhenta frá Þór HF, sem er umboðsaðili Joskin Alpina á Íslandi.
Stútfríður er sérstaklega til þess gerð að sinna slökkvistörfum í skógi og kemst ferða sinna aftan í traktor í erfiðum aðstæðum, slóðum og vegleysum, þar sem hefðbundnir slökkviliðsbílar komast ekki að.
Auk hefðbundinna brunaslangna er haugsugan einnig búin svokallaðri „Rain gun“ sem getur sprautað vatni allt að 70 metrum og jafnframt ótal öflugum áfyllingar og dælustútum til slökkvistarfa sem gerir að verkum að hún getur einnig nýst við vökvun, sáningu, gatnahreinsun, bindingu svifryks og fleira.
Í tilkynningu segir að kaup þessi séu þáttur í mikilvæfri vinnu sem unnin hefur verið undanfarin ár í brunavörnum í Kjarnaskógi og á tjaldsvæðinu að Hömrum. Skógræktarfélagið vonast þó auðvitað til þess að þurfa aldrei að nota Stútfríði í sínum aðaltilgangi:
„Og jú…við vonum auðvitað að við þurfum aldrei að nota tækið til þess verks sem það er fyrst og fremst keypt til, þe að slökkva eyfirska gróðurelda. Þar getið þið lagt okkur lið með því að sýna ábyrga hegðun í skógi sem og annarsstaðar og fara varlega með eld, eldur er jú alvörumál!“
Tengdar greinar
Uppfært: 22. nóvember 2026










