Þingeyingar mótmæla hækkun kílómetragjalds
Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar hefur mótmælt fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds á ökutæki sem lögð er til í tengslum við fjárlög ársins 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Þingeyjarsveitar.
„Nefndin bendir á að hækkunin muni auka framleiðslu- og flutningskostnað atvinnugreina í Þingeyjarsveit og að gjaldið taki ekki tillit til ólíkra aðstæðna sveitarfélaga. Þingeyjarsveit er landmesta sveitarfélag landsins, byggðin dreifð og vegalengdir oft langar. Hækkunin geti því komið sérstaklega þungt niður á atvinnurekendum og íbúum sveitarfélagsins.“
Ályktun nefndarinnar var samþykkt samhljóða.
Tengdar greinar
Uppfært: 23. nóvember 2026





