Fréttavefurinn Húsavík.com liggur niðri eftir umfangsmikla tölvuárás

„Það eru mörg stór fréttamál í gangi á Húsavík og fjöldi umfjallana sem bíður birtingar," segir Örlygur Hnefill Örlygsson, ritstjóri Húsavík.com, í samtali við Kaffið.is.
Fréttavefurinn er meðal fjölda vefsíða sem liggur niðri eftir umfangsmikla tölvuárás á hýsingarfyrirtækið 1984.
Árásin hefur haft áhrif á hundruðir vefsíðna á Íslandi, meðal annars vef Glerárskóla á Akureyri. Örlygur Hnefill segir fjölda frétta og umfjallana bíða birtingar hjá Húsavík.com á meðan vefurinn er óaðgengilegur.
Hann nefnir þar á meðal verkefni á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík, þar sem Norðurþing hefur undirritað lóðarleigusamning við EyrieDC vegna fyrirhugaðs gagnavers. Þá verður 20 ára afmæli Norðurþings fagnað í vikunni og ítarleg umfjöllun um stöðu Samkomuhússins á Húsavík bíður birtingar.
Tengdar greinar
Uppfært: 23. nóvember 2026









