MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Akureyrskir Íslandsmeistarar og aragrúi brons og silfur verðlauna á ÍM

Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·
Guðlaugur og Halldór með gullverðlaunin sín

Íslandsmeistaramót í brasilísku jiu jitsu í galla fór fram í Ármannshemilinu í Reykjavík í dag. Tvö akureyrsk íþróttafélög, Atlantic og 600MMA, sendu keppendur suður á mótið. Bæði félögin snéru heim með verðlaun í ýmsum flokkum.

Tveir keppendur frá 600MMA unnu gull og eru því Íslandsmeistarar í sínum flokkum (Keppendum í brasilísku jiu jitsu er skipt í flokka eftir bæði þyngd og beltalit.)
Guðlaugur Páll Magnússon varð Íslandsmeistari í +100,5kg flokki hvítbeltinga.
Halldór Logi Valsson varð Íslandsmeistari í +100,5kg flokki efri belta. Halldór hlaur einnig silfur í opnum flokki karla.
Guðbjartur Vilhjálmsson keppti einnig fyrir hönd 600MMA og hlaut silfur í -94,3kg flokki hvítbeltinga.

Agnar Ari Böðvarsson keppti fyrir hönd Atlantic á Akureyri og hlaut bronsverðlaun í sínum flokki, -100,5kg flokki efri belta.
Atlantic sendi líka nokkurn hóp keppenda á Íslandsmeistaramót barna og unglinga sem einnig fór fram í dag. Barnungir keppendur Atlantic snéru heim með tvö silfur verðlaun og tvö brons.

Akureyrsku félögin unnu því samanlagt til níu verðlauna á ÍM að þessu sinni: 2 gull, 4 silfur og 3 brons.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. nóvember 2026