Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Rannsókn vegna leikfangabyssa lokið

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Akureyri
Akureyri-krissi· kaffid.is

Rannsókn vegna gruns um vopnalagabrot á Akureyri um verslunarmannahelgina er lokið. Saksóknari segist eiga eftir að leggjast yfir málið og taka ákvörðun um næstu skref. RÚV greindi frá en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort mennirnir fimm sem reyndust ver með leikfangabyssur verða ákærðir.

Í byrjun ágúst voru fimm ungir menn handteknir á Akureyri með aðstoð sérsveitar, fyrir að ógna fólki með byssum út um bílglugga. Vopnin reyndust vera nákvæmar eftirlíkingar og leikföng. Mönnunum var sleppt að lokinni yfirheyrslu en lögregla rannsakar málið sem mögulegt vopnalagabrot.

Tengdar greinar

Uppfært: 7. október 2026