Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Slippurinn og Háskólinn á Akureyri undirrita samning um starfsnám

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Frá vinstri á myndinni eru Þorbjörg Ída Ívarsdóttir, verkefnastjóri í tæknifræði, Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins Akureyri, og Ólafur Jónsson, verkefnastjóri tæknináms HA og HR.

Slippurinn Akureyri og Háskólinn á Akureyri (HA) undirrituðu í dag, 27. nóvember, samning um starfsnám fyrir nemendur í iðnaðar- og orkufræði. Námið er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík (HR).

Samningurinn gefur nemendum kost á að stunda starfsnám hjá Slippnum Akureyri. Þar fá þeir tækifæri til að nýta þekkingu sína í fjölbreyttum verkefnum og kynnast því hvernig starfsfólk tekst á við tæknileg viðfangsefni í daglegu starfi.

„Við hjá Slippnum Akureyri hlökkum til að taka á móti nemendunum og miðla af reynslu starfsfólks okkar,“ segir í tilkynningu frá Slippnum.

Tengdar greinar

Uppfært: 27. nóvember 2026