Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Ráðherra heimsótti ferðaþjónustu á Austur- og Norðurlandi

Eftir Ingólfur Stefánsson·
IMG_7571-1
Albertína Elíasdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi Eystra, Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri.· kaffid.is

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra heimsótti nýverið fyrirtæki í ferðaþjónustu og ferðmannastaði á Austur- og Norðurlandi. Jafnframt ávarpaði ráðherra afmælisþing Sambands sveitarfélaga á Austurlandi í Egilsbúð í Neskaupsstað og atvinnulífssýningu Skagafjarðar á Sauðárkróki.

„Þetta hefur verið afskaplega gagnlegt, að hitta það fólk sem er í eldlínu ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og heyra þeirra sjónarmið“ sagði atvinnuvegaráðherra.

„Ég tel mikilvægt að við lítum ekki á atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni sem sérstakt verkefni án tengsla við annað í hagkerfinu, Ísland verður ekki efnahagslega sterkt nema atvinnulíf og samfélög séu sterk hringinn í kringum landið. Með stuðningi Flugþróunarsjóðs höfum við fengið millilandaflug til Akureyrar og ljóst er að þar á Austurland á mikið inni. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða nýtist síðan til að byggja upp áfangastaði ferðamanna á sömu svæðum og styður þannig enn frekar við dreifingu ferðamanna en við næstu úthlutun úr sjóðnum verður lögð sérstök áhersla á minna sótt svæði og jöfnun árstíðasveiflu. Í samtali mínu við ferðaþjónustuaðila á þessum svæðum heyrði ég hins vegar skýrt að það er ekki nóg að bæta aðgengi með flugi og byggja upp áfangastaði. Það verður einnig að tryggja vegasamgöngur að þeim og á það mun ég leggja áherslu núna.”

Á Norðurlandi heimsótti ráðherra kaffihúsið Gísli, Eiríkur og Helgi á Dalvík, Arctic Sea Tours, Arctic Heliskiing og hið nýopnaða Skáld hótel á Akureyri.

„Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er eitt af okkar helstu verkfærum til að styðja við þau markmið sem við höfum sett okkur í ferðaþjónustunni“ sagði ráðherra.

„Á næsta ári verða til úthlutunar um átta hundruð milljónir króna úr sjóðnum. Ég hef nú þegar tekið ákvörðun um að við næstu úthlutun skuli lögð sérstök áhersla á minna sótt svæði og jöfnun árstíðasveiflu. Sama áhersla endurspeglast í samningi sem ráðuneytið gerði við Íslandsstofu í sumar um neytendamarkaðssetningu, en framlag til hans nam 630 milljónum króna í ár. Stefnan er að gera neytendamarkaðssetningu viðvarandi og hætta tímabundnum átökum. Einnig vil ég nefna frumvarp til laga um náttúru- og innviðagjald á fjölsóttum ferðamannastöðum í eigu ríkisins. Markmið frumvarpsins er að þeir sem nýta náttúru og innviði landsins taki sanngjarnan þátt í þeim kostnaði sem af því hlýst. Tekjurnar munu skila sér til baka til greinarinnar, meðal annars í markaðssetningu og rannsóknir í ferðaþjónustu, sem og í það að byggja áfram upp og bæta innviði og náttúruvernd á þeim stöðum sem gjaldtakan nær til og um land allt. Þannig stöndum við vörð um gæði íslenskrar ferðaþjónustu til framtíðar og tryggjum að hún haldi samkeppnishæfni sinni.“

Nánar á vef Stjórnarráðsins.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. september 2026