Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Nemendur og starfsfólk Giljaskóla stóðu saman gegn einelti

Eftir Ingólfur Stefánsson·
06.11.2026-akureyri-giljaskoli-hringadur-16
Hilmar Friðjónsson tók mynd af vinakeðjunni· kaffid.is

Í dag var haldið upp á Baráttudag gegn einelti í Giljaskóla á Akureyri. Af því tilefni fóru nemendur og starfsfólk skólans út úr skólastofunum og mynduðu saman eina stóra vinakeðju utan um skólann.

„Að þessu sinni langaði okkur að gera Baráttudegi gegn einelti hátt undir höfði með því að mynda keðju utan um skólann. Það var sannarlega ánægjulegt og gleðiefni að sjá hve fjöldi nemenda ásamt öllu starfsfólki náði að halda vel utan um skólann okkar,“ segir í tilkynningu.

„Þessi stund minnir okkur öll á hve dýrmætt það er að sýna kærleika, virðingu og umhyggju í skólastarfinu á hverjum einasta degi.“

Nemendur og starfsfólk Giljaskóla stóðu saman gegn einelti

Tengdar greinar

Uppfært: 10. nóvember 2026