Nemendur MA áfram í stærðfræðikeppni framhaldsskólanema

Tveir nemendur MA komust áfram í Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema, sem haldin var 29. september. Þetta kemur fram á vef MA þar sem greint er frá því að Tobías Þórarinn Matharel í 2X hafi orðið í 22. sæti og Snædís Hanna Jensdóttir í 3X í 8. sæti, bæði á efra stigi. Bæði komust þau áfram í fyrra líka.
Þau sem komast áfram eftir forkeppnina öðlast rétt til að keppa í úrslitakeppninni sem haldin verður í mars á næsta ári. Þeim sem verða í efstu sætum úrslitakeppninnar býðst þátttaka í Norrænu stærðfræðikeppninni og þau gætu einnig verið valin til að keppa í Eystrasaltskeppninni og Ólympíuleikunum í stærðfræði.
Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema hefur verið haldin árlega síðan 1984 og markmið hennar er að auka áhuga framhaldsskólanema á stærðfræði og öðrum greinum sem byggja á stærðfræðilegum grunni. Að þessu sinni tóku 13 nemandur úr MA þátt í forkeppninni.
Tengdar greinar
Uppfært: 16. október 2026




-800x450.webp&w=1920&q=75)
