Nemendur á Akureyri yfir landsmeðaltali í vísindum og stærðfræðilæsi
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Niðurstöður PISA 2025 voru birtar í síðasta mánuði. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur nú greint frammistöðu íslenskra nemenda í rannsókninni niður á sjö fjölmennustu sveitarfélög landsins og borið saman við landsmeðaltal.
Nemendur á Akureyri koma vel út í greiningunni á PISA-niðurstöðum eftir sveitarfélögum. Þeir mælast yfir landsmeðaltali bæði í vísindum og stærðfræðilæsi en lesskilningur rétt undir landsmeðaltali.
Þegar horft er til þess hversu stór hluti nemenda nær svokallaðri grunnhæfni kemur Akureyri vel út.
Á Akureyri náðu:
- 65% nemenda grunnhæfni í vísindum,
- 66% grunnhæfni í stærðfræðilæsi,
- 56% grunnhæfni í lesskilningi.
Tengdar greinar
Uppfært: 8. október 2026




-800x450.webp&w=1920&q=75)
