Mikil ánægja með stuðningsþjónustu meðal eldri borgara á Akureyri

99 prósent þátttakenda í þjónustukönnun sem velferðarsvið Akureyrarbæjar lét framkvæma meðal eldri borgara á Akureyri sem nýta stuðningsþjónustu Akureyrarbæjar sögðust vera ánægð með stuðningsþjónustuna. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins í dag.
Þar segir að niðurstöðurnar séu afar jákvæðar og að þáttaka hafi verið góð. Um 70 prósent eldri borgara á Akureyri tóku þátt og tæplega 60 prósent þeirra sem svöruðu voru 80 ára eða eldri. Markmið könnunarinnar var að fá fram upplifun og viðhorf notenda til þjónustunnar og kanna hvort hún mætti þörfum og væntingum þeirra.
„Ákveðið var að ráðast í könnunina í kjölfar Gallup-könnunar þar sem ánægja með þjónustu við eldri borgara á Akureyri mældist ekki ásættanleg. Þótti mikilvægt að afla frekari upplýsinga beint frá notendum þjónustunnar og fá skýrari mynd af því hvað væri að ganga vel og hvort einhverjir þættir kölluðu á frekari skoðun eða úrbætur,“ segir í tilkynningu bæjarins.
Alls sögðust 98 prósent þátttakenda hafa gagn af stuðningnum og 99 prósent sögðu stuðninginn bæta lífsgæði sín. Þá upplifðu 99 prósent vingjarnlegt viðmót starfsfólks og 98 prósent sögðust upplifa að á þau væri hlustað. Þegar á heildina er litið sögðust 99 prósent vera ánægð með stuðningsþjónustuna, og þar af mældust 83 prósent mjög ánægð.
Tengdar greinar
Uppfært: 5. október 2026




-800x450.webp&w=1920&q=75)
