Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Hölludagur haldinn í MA

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
20261011_131834
Ljósmynd frá MA þar sem Jóhann S. Björnsson, kennari í eðlisfræði, sýnir hvernig hægt er að láta vatn ná suðumarki en vera samt ískalt· kaffid.is

Kennarar í raungreinum í Menntaskólanum á Akureyri héldu fjölskyldudag í dag í raungreinahúsi skólans. Á vef MA kemur fram að viðburðurinn hafi fengið heitið Hölludagur til heiðurs forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, sem á afmæli í dag. Kennararnir buðu samstarfsfólki sínu og fjölskyldum þeirra í heimsókn þar sem hægt var að skoða og taka þátt í ýmsu skemmtilegu sem tengist þeim raungreinum sem kenndar eru við skólann

Það voru tilraunir í efnafræði og eðlisfræði, sem sumum viðstöddum fannst vera eins og galdrar, smásjár og sjónauki, uppstoppuð dýr og líffæri úr dýrum og steinasafn. Það var hægt að nýta bragðskynið til að greina mismunandi sætustig, finna leiðni á eigin skinni og margt fleira.

Tengdar greinar

Uppfært: 11. október 2026