Grunur um klórgasmengun í Hnýfli
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Fjórir starfsmenn fiskvinnslunnar Hnýfils á Óseyri hafa leitað aðhlynningar á Sjúkrahúsinu á Akureyri í kjölfar þess að grunur vaknaði um efnaleka í húsnæði fyrirtækisins síðdegis. Slökkvilið og lögregla luku störfum á vettvangi rétt eftir klukkan 20. Rannsóknardeild lögreglunnar á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins.
Tilkynning um málið barst lögreglu klukkan 16:22. Samkvæmt upplýsingum frá vettvangi leikur grunur á að um klórgasleka sé að ræða.
Tengdar greinar
Uppfært: 23. september 2026




-800x450.webp&w=1920&q=75)
