MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Skógræktarfélag Eyfirðinga fær afhenta nýja haugsugu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Skógræktarfélag Eyfirðinga

Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur fengið afhenta nýja haugsugu sem er sérútbúin til slökkvistarfa í skógi. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum Skógræktarfélagsins í dag.

Haugsugan er fyrst og fremst ætluð til fyrstu viðbragða við mögulegum gróðureldum. Hún er af gerðinni Joskin Alpina og hefur hlotið nafnið Ungfrú Stútfríður. Auk slökkvistarfa getur hún nýst við ýmis önnur verkefni, svo sem vökvun, sáningu, gatnahreinsun og bindingu svifryks.

Undanfarin ár hefur verið unnið að stefnu- og áætlanagerð um brunavarnir í Kjarnaskógi og á tjaldsvæðinu að Hömrum. Þar hafa Akureyrarbær, Slökkvilið Akureyrar, Skátarnir og Skógræktarfélag Eyfirðinga unnið saman að því að efla viðbúnað og öryggi á svæðinu.

„Skógræktarfélagið fagnar þessum áfanga og vonast að sjálfsögðu til að tækið þurfi sem minnst að sinna sínu aðalhlutverki,“ segir í tilkynningu.

Tengdar greinar

Uppfært: 20. nóvember 2026