MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

„Fræðslu- og lýðheilsumálin veigamesti þátturinn í rekstri sveitarfélagsins“

Eftir Ingólfur Stefánsson·
baejarfulltruar-og-baejarstjori-asamt-fulltruum-ksi-fyrir-framan-radhus-akureyrarbaejar-fyrr-i-dag-2000×1374-1
kaffid.is

Bæjarstjórn Akureyrar fundaði með fulltrúum úr stjórn Kennarasambands Íslands á föstudaginn. Á vef bæjarins segir að fundurinn hafi verið góður og gagnlegur.

„Margt bar á góma en fyrst og fremst var horft til þess hvers konar skólakerfi við viljum byggja upp til framtíðar,“ segir á Akureyri.is

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, lýsir mikilli ánægju með samtalið og segir mikilvægt að slíkar umræður eigi sér stað.

„Við leggjum að sjálfsögðu allan okkar metnað í að starfið í leik- og grunnskólum bæjarins, ásamt tónlistarskólanum, sé eins og best verður á kosið enda eru fræðslu- og lýðheilsumálin veigamesti þátturinn í rekstri sveitarfélagsins. Það var því mjög gagnlegt að hitta fulltrúa Kennarasambands Íslands til að fara yfir stöðu mála og leiðir til að tryggja að sameiginleg framtíðarsýn okkar allra nái fram að ganga samfélaginu öllu til heilla,“ sagði Berglind Ósk að loknum fundinum.

Tengdar greinar

Uppfært: 1. nóvember 2026