Einn fluttur á sjúkrahús eftir árekstur við Hlíðarbæ
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Einn aðili hefur verið fluttur á sjúkrahús eftir tveggja bíla árekstur við Hlíðarbæ norðan við Akureyri í dag. Bílslysið varð við afleggjarann við Hlíðarbæ norðan við Akureyri. Þetta kemur fram á vef RÚV í dag.
Þar segir að sex farþegar hafi verið í bíl sem ók út frá afleggjaranum við Hlíðarbæ í veg fyrir bíl sem keyrði norður frá Akureyri. Jón Valdimarsson, varðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra, staðfestir í samtali við RÚV að allir sex í einum bílnum hafi sloppið ómeiddir en ökumaður hins bílsins var fluttur á sjúkrahús, ekki talinn alvarlega slasaður.
Lögreglan stjórnar nú umferð um svæðið og búast má við smávægilegum umferðartöfum á vettvangi þar til bílarnir verða fluttir á brott.
Tengdar greinar
Uppfært: 9. október 2026





-800x450.webp&w=1920&q=75)