Árekstur á gatnamótum Glerárgötu og Strandgötu
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Tveir bílar lentu í árekstri á gatnamótum Glerárgötu og Strandgötu á Akureyri skömmu fyrir klukkan átta í morgun. Engin slys urðu á fólki. Greint er frá á vef RÚV í dag.
Þar er haft eftir Jóni Valdimarssyni, varðstjóra hjá lögreglunni að talsverðar umferðartafir hafi orðið á meðan viðbragðsaðilar unnu á vettvangi. Aðgerðum lauk um tíu leytið í morgun.
Tengdar greinar
Uppfært: 27. nóvember 2026





