Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

600 Klifur fagnar fyrsta árinu og heiðrar sögu húsnæðisins

Eftir Ingólfur Stefánsson·
IMG_8872
kaffid.is

Klifuraðstaðan 600 Klifur opnaði við Dalsbraut 1 á Akureyri í október á síðasta ári. Eigendur staðarins eru stoltir af því hvernig fyrsta árið hefur gengið.

„Við höfum unnið hart að því að betra og bæta aðstöðuna og starfið í heild sinni enn frekar síðan við opnuðum,“ segir Katrín Kristjánsdóttir í samtali við Kaffið.is.

Eitt af því sem eigendur hafa lagt áherslu á frá opnun er að heiðra sögu húsnæðisins sem aðstaðan er í. Eftir mikla vinnu við að gera upp húsnæðið og koma því í gott stand hafa þau hafið vinnu við að heiðra sögu hússins.

600 Klifur fagnar fyrsta árinu og heiðrar sögu húsnæðisins

„Okkur þykir vænt um sögu húsnæðisins og svæðisins í kring. Þetta er stórmerkilegt svæði með mikla sögu. Húsið er gamalt og mörg fyrirtæki hafa verið starfrækt þar í gegnum tíðina. Það tók okkur rúmlega ár að gera upp húsnæðið og koma því í gott stand. Það var mikið verk. Nú í vor og sumar höfum við unnið í samstarfi við Minjasafn Akureyrar og Karl Eskil Pálsson að gerð upplýsingaskiltið um sögu Sambandsverksmiðjanna á Gleráreyrum sem er nú loks komið upp á vegg utan á húsnæðinu okkar,“ segir Katrín.

Verksmiðjusvæðið á Gleráreyrum var í áratugi fjölmennasti vinnustaður Akureyrar. Árið 1987 unnu í kringum 1000 manns í verksmiðjunum. Þá bjuggu um 12.000 manns á Akureyri.

„Við erum ekki með jafn mikið starfsfólk hjá okkur í 600 Klifur en það hefur heldur betur verið mikið líf hérna síðasta árið og erum við stolt af því.“

Á upplýsingaskiltinu má sjá mynd af svæðinu eins og það leit út um miðja síðustu öld. Mörg húsanna hafa nú verið rifinn og ný risið í staðinn, til dæmis Glerártorg. Klifursalur 600 Klifur stendur í húsi sem hýsti á sínum tíma ullarþvottastöð Gefjunnar og er eitt af fáum eftirstandandi húsum Verksmiðjanna frá þessum tíma.

600 Klifur fagnar fyrsta árinu og heiðrar sögu húsnæðisins

„Við hvetjum fólk til að kíkja við og skoða skiltið og enn frekar að líta inn og fá sér kaffibolla. Ég get lofað því að þeir sem þekkja húsnæðið frá fyrri tíð munu verða hissa á breytingunni. Svo er ekki verra að reyna aðeins við klifurveggina líka, við erum með klifurleiðir við allra hæfi, börn, fullorðna, byrjendur og vana klifrara,“ segir Katrín að lokum.

Í lok mánaðarins mun 600 Klifur halda 1 árs afmælishátíð með klifurmóti 24. október og afmælisveislu 31. október.

Tengdar greinar

Uppfært: 1. október 2026