Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Vill sjö nýja lögreglumenn til starfa

Eftir Ingólfur Stefánsson·
paley
kaffid.is

Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, fer fram á 154 milljónir króna til að fjölga lögreglumönnum í embættinu um sjö í umsögn um fjárlagafrumvarp næsta árs. Hún segir að verkefnum hafi fjölgað umfram fjármögnun á undanförnum árum.

Í umsögn embættisins fyrir fjárlagafrumvarp næsta árs, sem Páley undirritar, segir að mæta þurfi auknu álagi vegna skipulagðrar brotastarfsemi, ofbeldi meðal barna og landamæraeftirlits.

Embættið telur nauðsynlegt að fjölga lögreglumönnum í vaktavinnu, styrkja rannsóknardeildina og bæta viðbragðsgetu utan dagvinnutíma.

Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra telur nauðsynlegt að við úthlutun þess viðbótarfjármagns sem ætlað er til fjölgunar lögreglumanna á árinu 2027 verði embættinu tryggð fjármögnun fyrir fimm ný stöðugildi lögreglumanna.

Embættið gerir jafnframt kröfu um fjármögnun fyrir tvö stöðugildi vegna verkefna sem tengjast ofbeldi barna gegn börnum, kynferðisbrotum gegn börnum og öðrum málum þar sem börn eru brotaþolar eða gerendur.

Tengdar greinar

Uppfært: 15. október 2026