Þrír flokkar bjóða fram í Þingeyjarsveit

Frestur til þess að skila inn framboðslistum til sveitarstjórnarkosninga 2026 rann út á hádegi í gær, 10. apríl. Þrír listar hafa fengið staðfest framboð í Þingeyjarsveit, það eru Á-listi ábyrgðar, L-listi framfara og N-listinn. 

Kosnir verða sjö sveitarstjórnarfulltrúar í vor, en samþykkt var að fækka fulltrúum úr 9 í 7 fyrr á árinu. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá sýslumönnum hefst 17. apríl en hjá sveitarfélögum verður hægt að greiða atkvæði utan kjörfundar á tímabilinu 4. maí – 15. maí.

Hægt er að sjá framboðin á vef Þingeyjarsveitar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!