MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sveitastjórnarkosningar 2026

Meirihlutasamkomulag á Akureyri í höfn

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot 2026-05-17 at 14.37.20
kaffid.is

L-listinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Akureyrar samkvæmt heimildum Kaffið.is. Samningur flokkanna verður kynntur formlega á blaðamannafundi næstkomandi föstudag.

L-listinn tapaði manni til Samfylkingarinnar í kosningunum sem fóru fram um síðustu helgi en náði inn tveimur mönnum líkt og Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og Samfylkingin. Meirihlutinn frá síðustu kosningum sem L-listinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn mynduðu féll og nú stendur til að Framsóknarflokkurinn taki við af Miðflokknum í meirihlutanum.

Kjörnir bæjarfulltrúar:

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (D)

Óðinn Svan Óðinsson (L)

Sindri S. Kristjánsson (S)

Sunna Hlín Jóhannesdóttir (B)

Heimir Örn Árnason (D)

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir (L)

Hanna Dóra Markúsdóttir (S)

Hlynur Jóhannsson (M)

Jana Salóma Ingibjargar Jósepsdóttir (V)

Þórhallur Jónsson (A)

Gunnar Már Gunnarsson (B)

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026