Þórsarar sigra Íslandsmeistarana

Þór tók á móti Íslandsmeisturum Víkings í Bestu deild karla og sigraði með tveimur mörkum gegn einu. Leikurinn var merkilegur fyrir þær sakir að fyrrum liðsfélagarnir Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson mættust í viðureigninni.
Leikurinn var rólegur framan af en fyrsta markið kom ekki fyrr en á 82 mínútu þegar Ágúst Eðvald Hlynsson kom Þór yfir. Stuttu síðar á 88 mínútu bætti Þór forskotið þegar Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, sem er nýkominn á láni frá KR, skallaði boltann í netið. Daða Berg Jónsson tókst svo að minnka muninn á 90 mínútu en mörkin urði ekki fleiri.
Eftir leikinn eru Þór enn á botninum, með 11 stig eftir 15 umferðir en Víkingur er á toppnum með 40 stig. Þetta er fyrsti leikurinn sem Víkingur tapar á deildartímabilinu og þriðji sigur Þórs.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026





