Fjórða þyrla Landhelgisgæslunnar verður á Akureyri
Flýta á því að bæta fjórðu þyrlunni við flota Landhelgisgæslunnar

Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að flýta því að bæta fjórðu þyrlunni við flota Landhelgisgæslunnar. Ákvörðunin var tekin á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun . Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, segir að þyrlan eigi að vera á Akureyri.
Björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar eru núna í Reykjavík. Aðeins ein þeirra var tiltæk þegar skipið Jökull ÞH sökk á miðvikudag.
„Það sem verður lagt til við fjárlaganefnd núna er að fundið verði fjármagn til þess að hefja undirbúning með því að reisa skýli. Það vantar aðstöðu fyrir nýja þyrlu. Við erum að flýta ferlinu, leggja af stað með kostnað fyrir skýli. Það hefur verið tekin ákvörðun um að fjórða þyrlan verði staðsett á Akureyri.“
Áætlaður kostnaður við fjórðu þyrluna er rúmlega milljarður króna á ári. Mikil eftirspurn er eftir þyrlum. Talið er að það gæti tekið 1–3 ár að taka þyrlu á leigu. Dómsmálaráðherra segir að því verði flýtt eftir fremsta megni að fá hana til landsins.
Tengdar greinar
Uppfært: 27. nóvember 2026





