Segir niðurstöður staðfesta sterkan og ábyrgan rekstur sveitarfélagsins

Árshlutareikningurinn fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026 var lagður fram í bæjarráði Akureyrar í morgun. Lítilsháttar halli var á rekstri A- og B-hluta Akureyrarbæjar fyrri hluta ársins 2026. Gert hafði verið ráð fyrir 30 milljóna króna afgangi en hallinn var 87 milljónir króna.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segir að niðurstöður fyrstu sex mánaða ársins staðfesti sterkan og ábyrgan rekstur sveitarfélagsins. Greint er frá í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag.
„Minniháttar halli á samstæðunni miðað við áætlun skýrist að mestu af áhrifum þrálátrar verðbólgu og hærri lífeyrisskuldbindinga en lagt var upp með við gerð fjárhagsáætlunar. Rekstrarniðurstaða aðalsjóðs er hins vegar betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Lykilatriði er að niðurstaðan sýnir að reksturinn skapar gott svigrúm fyrir áframhaldandi fjárfestingar og góða þjónustu við íbúa,“ segir Berglind Ósk á Akureyri.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 1. október 2026




-800x450.webp&w=1920&q=75)
