Samherji selur Margréti EA-710
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Samherji hefur selt uppsjávarskipið Margréti EA-710. Kaupandi er færeyska útgerðin Ango. Skipið hefur verið afhent og hafa nýir eigendur gefið því nýtt nafn, Ísborg. Þetta kemur fram á vef Samherja í dag.
Skipið var smíðað í Noregi árið 2008 og er 72 metra langt og 15 metra breitt. Samherji keypti Margréti EA árið 2023. Á vef Samherja segir að skipið er öflugt og að það hafi reynst vel við uppsjávarveiðar Samherja undanfarin ár.
Tengdar greinar
Uppfært: 30. september 2026





