Sparisjóðirnir
MAK
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

„Lykilatriði að vera léttur í lund og jákvæður“

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Mynd: Samherji

Í morgun þegar Björg EA kom til heimahafnar á Akureyri lauk síðasta túrnum á farsælum sjómannsferli Magnúsar Sævarssonar. Magnús hefur starfað hjá Samherja frá árinu 1992 og verið kokkur á skipum félagsins í um 25 ár.

„Auðvitað finnst manni skrítið að vera að hætta en þetta er eitthvað sem enginn getur flúið. Maður er bara hress og kátur með að hafa góða heilsu og takast á við ný verkefni. Ég hef nóg að gera og hlakka til þess sem framtíðin hefur í för með sér,“ segir Magnús í tilkynningu á samfélagsmiðlum Samherja í dag.

„Mér hefur líkað starfið vel. Þetta er að mörgu leyti fjölbreytt og félagar mínir um borð hafa undantekningarlaust verið góðir. Ef þú ætlar að vera kokkur á sjó þá held ég að það sé lykilatriði að vera léttur í lund og jákvæður. Og ef þú kemur vel fram við alla í kringum þig þá gengur allt miklu betur,“ segir Magnús.

Nánar á Facebook-síðu Samherja

Tengdar greinar

Uppfært: 24. nóvember 2026