Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Samherji kaupir Bjarna Ólafsson AK

Eftir Ingólfur Stefánsson·
bjarni-olafsson-ak-70
kaffid.is

Samherji hefur fest kaup á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70 frá Síldarvinnslunni. Skipið var smíðað árið 1999 í Noregi og var keypt til Íslands árið 2015. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samherja í dag.

Bjarni Ólafsson er um 2000 tonn að þyngd og er burðargeta skipsins tæp 2000 tonn. Skipið er 67 metrar að lengd og 13 metra breitt. Skipið er búið til veiða með nót og flottrolli, sem hefur í för með sér aukna möguleika og sveigjanleika í uppsjávarveiðum Samherja.

Skipið var afhent í Neskaupstað í dag og heldur þaðan beint á síldveiðar. Skipstjóri í fyrstu veiðiferð Bjarna Ólafssonar á vegum Samherja er Hjörtur Valsson. Gert er ráð fyrir að skipið komi til heimahafnar á Akureyri á næstu vikum. Þá verður skipinu gefið nýtt nafn, það fer í hefðbundið viðhald og undirbúið fyrir komandi loðnuvertíð.

Tengdar greinar

Uppfært: 13. október 2026