Rúnar Eff Rúnarsson var fulltrúi Akureyringa í söngvakeppni sjónvarpsins í ár. Rúnar flutti lagið Mér við hlið og sló heldur betur í gegn. Hann komst alla leið í úrslitakvöldið en að lokum var það Svala Björgvinsdóttir sem sigraði keppnina með laginu Ég veit það.
Hann segir þáttökuna einnig hafa verið mjög reynsluríka. „Þetta er allt svo stórt í sniðum og ólíkt því sem maður er vanur. Þarna má ekkert klikka og undirbúningurinn er eftir því, langur og strangur.“
En hvað var það skemmtilegasta við þáttökuna? „Ætli það hafi ekki bara verið að kynnast öllu þessu magnað fólki sem er í kringum keppnina, bæði hinum keppendunum og svo bara öllu starfólkinu sem leggur allt í að gera þetta eins vel og hugsast getur.
Aðspurður hvort að hann gæti hugsað sér að taka þátt aftur í söngvakeppninni segir Rúnar að hann gæti vel hugsað sér það einhverntímann. „En þetta er rosalega tímafrekt. Ég þyrfti alveg að hugsa mig vel um og skipuleggja mig vel ef ég tæki slaginn aftur. Ég er til að mynda búinn að vera meira og minna í Reykjavík undanfarinn einn og hálfan mánuð. Þegar ég var heima var ég fastur í tölvunni að svara tölvupóstum. Áreitið var alveg með ólíkindum, sérstaklega erlendis frá. Það er endalaust af eurovision tímaritum og vefsíðum sem senda sífellt á mann spurningar.“
UMMÆLI