Opinn dagur í HA á fimmtudaginn

Háskólinn á Akureyri býður öllum áhugasömum í heimsókn á HA-daginn, opinn dag í háskólanum, fimmtudaginn 5. nóvember.
„Hvort sem þú ert að velta fyrir þér næstu skrefum í námi eða vilt einfaldlega kynnast háskólalífinu er þetta kjörið tækifæri til að kíkja við, spyrja spurninga og kynnast því sem HA hefur upp á að bjóða,“ segir í tilkynningu á vef Háskólans á Akureyri.
Á HA-deginum verða allar námsleiðir í grunnnámi kynntar á básum þar sem stúdentar taka á móti gestum og deila reynslu sinni af náminu og félagslífinu. Starfsfólk verður einnig á staðnum og gestir geta kynnt sér stoðþjónustu háskólans, þann stuðning sem stendur stúdentum til boða og húsnæðismöguleika á stúdentagörðunum.
„Stúdentarnir okkar eru hjartað í HA-deginum. Þau taka svo vel á móti gestum og deila af einlægni sinni reynslu af náminu og háskólalífinu. Fyrir þau sem eru að velta fyrir sér háskólanámi er ómetanlegt að geta spjallað við fólk sem er í náminu, spurt spurninga og fengið að heyra hvernig þetta er í raun og veru. Við erum stolt af háskólanum okkar og hlökkum til að sýna gestum allt það sem hér er í boði,“ segja Sólveig María Árnadóttir og Silja Rún Friðriksdóttir, skipuleggjendur HA-dagsins, á heimasíðu skólans þar sem lesa má meira um HA-daginn.
Tengdar greinar
Uppfært: 3. nóvember 2026





