Oddvitaspjall – Sunna Hlín Jóhannesdóttir

Ný styttist óðum í sveitarstjórnarkosningar, en þær fara fram laugardaginn 16. Maí næstkomandi. Akureyringar munu þá kjósa sér nýja bæjarstjórn og geta valið milli átta framboðslista. Til þess að hjálpa lesendum að gera upp hug sinn hefur Kaffið sent út stuttan spurningalista á oddvita allra framboða í sveitarfélaginu. Svör þeirra verða birt í oddvitaspjöllum sem þessu á næstu dögum og vikum.
Oddvitaspjallið að þessu sinni er við Sunnu Hlín Jóhannesdóttur, oddvita B-lista Framsóknarflokksins
Hver eru helstu stefnumál þíns framboðs fyrir komandi kosningar?
Við viljum hugsa húsnæðismálin upp á nýtt, setja akureyrskt atvinnulíf í öndvegi, málefni eldri borgara verða forgangsmál hjá okkur og við þurfum að berjast fyrir hagsmunum íbúa og atvinnulífs. Aldrei hefur verið mikilvægara en nú að verja þjónustu, innviði og störf.
Er eitthvað við bæinn okkar sem þér finnst ganga sérstaklega vel eins og staðan er í dag og þú vilt standa sérstakan vörð um?
Það er mjög margt sem bærinn er að gera vel en ég tel sérstaklega mikilvægt að við veitum kennurunum okkar stuðning við oft krefjandi aðstæður. Eins þurfum við að standa vörð um Farsæld barna, sú innleiðing er langhlaup og nú reynir á að berjast fyrir samræmdu kerfi sem virkar, að úrræðin séu til staðar og að biðlistar styttist.
Á hinn bóginn, er eitthvað við bæinn okkar sem þér finnst ekki ganga nógu vel eins og staðan er í dag og þú vilt kippa í lag?
Ég hef nokkrar áhyggjur af húsnæðismarkaðnum. Að skipulagið okkar sé orðið of einsleitt og við séum því ekki að sinna öllum hópum samfélagsins. Við þurfum að hlusta betur eftir þörfum markaðarins.
Að okkar mati skilaði núverandi meirihluti auðu í stefnumörkun atvinnumála. Við viljum sækja nýjar fjárfestingar og nýtt fólk með öflugri markaðssetningu í nánu samstarfi við atvinnulífið.
Síðast en ekki síst þá þurfum við að vera miklu sýnilegri í allri hagsmunagæslu fyrir íbúa og atvinnulíf. Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að verja þjónustu, störf og innviði.
Nú eru fyrstu sveitarstjórnarkosningar síðan Akureyri var formlega skilgreind sem svæðisborg síðasta haust. Hvað þarf að þínu mati að gera til þess að styðja við borgarhlutverkið?
Til að Akureyri geti staðið undir sterku borgarhlutverki þarf fleiri störf, öfluga skóla, trygga heilbrigðisþjónustu, öflugar samgöngur og góðar tengingar við umheiminn. Þannig byggjum við upp sterkara samfélag og betra jafnvægi í búsetu.
Hvernig finnst þér Akureyrarbær standa sig í málefnum Hríseyjar og Grímseyjar? Er eitthvað sem þú og þitt framboð viljið gera öðruvísi?
Við þurfum að taka betur utan um Grímseyinga og íbúa Hríseyjar, bæði stjórnkerfið okkar og bæjarfulltrúar. Íbúar brenna fyrir sína byggð og samfélagið er sterkt en mótbárurnar eru svo sannarlega til staðar. Eins viljum við kynna betur kosti eyjanna fyrir íbúum sveitarfélagsins. Að heimsækja eyjarnar er frábær núvitund. Það þarf ekki alltaf að leita langt yfir skammt.
Ein létt að lokum, hvernig tekurðu kaffið þitt?
Ljósbrúnt
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










