Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir leiðir lista Samstöðu

Nýr framboðslisti fyrir sveitastjórnarkosningar Svalbarðsstrandarhrepps

Samstaða er nýr framboðslisti fyrir sveitastjórnarkosningar Svalbarðsstrandarhrepps, þann 16.maí næstkomandi. Í tilkynningu frá flokknum á samfélagsmiðlum segir að Samstaða leggi áherslu á opna og faglega stjórnsýslu, skýrt upplýsingaflæði og virka þáttöku íbúa. Jafnframt er markmið flokksins að byggja upp fjölskylduvænt samfélag með öflugri þjónustu og jöfnum tækifærum fyrir alla.

„Við leggjum fram skýra sýn á samfélag þar sem gott er að búa, lifa og starfa með áherslu á traust, þátttöku og fjölskylduvænt umhverfi,“ segir í tilkynningunni.

Á listanum eru:

1. Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir

2. Hafrún Helga Arnardóttir

3. Halldóra Dögg Sigurðardóttir

4. Sigrún Rósa Kjartansdóttir

5. Elísabet Ásgríms

6. Eva Sandra Bentsdóttir

7. Heiðrún Beck

8. Þóra Sigríður Torfadóttir

9. Maríanna Lind Garðarsdóttir

10. Helena Valdís Bergland

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!