Ný leiksvæði í Hagahverfi

Börn í Hagahverfi hafa nú fengið ný og endurbætt leiksvæði þar sem tvö leiksvæði hafa þegar verið tekin í notkun og unnið er að því þriðja.
Leiksvæðin við Halldóruhaga og Nonnahaga voru tekin í notkun í byrjun sumars. Þar er meðal annars battavöllur fyrir fótbolta og aðra boltaleiki og grillhús. Leiksvæðið í Naustagili við Davíðshaga var fullfrágengið um mitt sumar. Þriðja leiksvæðið, við Geirþrúðarhaga, er nú á lokastigi framkvæmda. Leiktækin hafa verið sett upp og stefnt er að því að opna svæðið innan tveggja til þriggja vikna, ef veður leyfir.
„Framkvæmdirnar eru liður í því að bæta leik- og afþreyingaraðstöðu barna í hverfinu og gera leiksvæðin fjölbreyttari fyrir mismunandi aldurshópa. Með þeim er komið til móts við óskir íbúa um betri leik- og útivistarmöguleika í nærumhverfinu,“ segir á vef Akureyrarbæjar.
Fyrirtækið Leiktæki & Sport sá um uppsetningu leiktækja á fyrstu tveimur svæðunum og Garðverk um frágang þeirra. Garður & hönnun sér um lokafrágang á leiksvæðinu við Geirþrúðarhaga.
Tengdar greinar
Uppfært: 14. október 2026





