Sparisjóðirnir
MAK
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Ljósaganga gegn ofbeldi á Akureyri í dag

Eftir Ingólfur Stefánsson·

Í dag, miðvikudaginn 25. nóvember verður farin Ljósaganga á Akureyri í tilefni 16 daga átaks gegn ofbeldi. Safnast verður saman á Ráðhústorgi klukkan 16.30 og þaðan er gengið að Amtsbókasafninu þar sem Agnes Blöndal aðstoðarsaksóknari flytur erindi og nemendur frá MA og HA taka þátt.

Að göngunni standa Soroptimistaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbburinn Þórunn hyrna og fulltrúar nemenda og stúdenta í MA og HA.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir, formaður skipulagsráðs Akureyrarbæjar og lögregluþjónar leiða gönguna. Á Amtsbókasafninu bíða heitir drykkir og fróðleg erindi.

Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991. Tímabil átaksins tengir á táknrænan hátt saman dagana 25. nóvember, sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum, og 10. desember, sem er alþjóðlegi mannréttindadagurinn.

Markmiðið er að knýja á um afnám alls ofbeldis og styðja við réttindi, réttlæti og aðgerðir gegn ofbeldi.

Mætum öll, sýnum stuðning og göngum saman gegn ofbeldi!

Stimplaðu þig inn á Facebook og taktu þátt í göngunni.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. nóvember 2026