M – Listi Samfélagsins í Norðurþingi samþykktur

Framboðslisti M – Lista Samfélagsins í Norðurþingi var samþykktur 15. mars 2026. Listinn er settur fram með það að markmiði að sameina öflugt og reynslumikið fólk úr ólíkum áttum samfélagsins til að vinna að hagsmunum íbúa sveitarfélagsins. Í tilkynningu frá listanum segir:

Um er að ræða breiðan hóp einstaklinga úr samfélaginu, sem er skipaður óháðum, félagshyggjufólki og Miðflokksfólki í Norðurþingi.

Á listanum væri fólk með víðtæka þekkingu og reynslu úr atvinnulífi, velferðarmálum og stjórnsýslu.  

Frambjóðendur eru tilbúin að axla ábyrgð, takast á við krefjandi mál, leggja vinnu og metnað í málefni sem styðja fjölskyldur, íbúa og fyrirtæki í Norðurþingi.

Hópurinn hlakkar til að kynna áhersluatriði sín sem munu m.a. innihalda stuðning við frumkvöðlastarf og atvinnuuppbyggingu, skilvirkni í rekstri og aukna velferð í sveitarfélaginu. Stjórnsýslan verður heiðarleg og skilvirk og byggist upp á samráði, samstarfi og þjónustu við íbúa, fyrirtæki og aðra hagaðila í öllu sveitarfélaginu.

M – Lista samfélagsins skipa eftirtaldir:

  1. Rúnar Traustason, 40 ára, rekstarstjóri Íslandspósts og sjúkraflutningamaður HSN, Húsavík.
  2. Ágúst Sigurður Óskarsson, 59 ára, Ráðgjafi og atvinnulífstengill Virk og sjúkraflutningamaður HSN, Húsavík.
  3. Elín Guðmundsdóttir, 57 ára, bókari Enor ehf., Húsavík.
  4. Brynjar Baldursson, 42 ára, framkvæmdastjóri Heimamanna ehf. og sjúkraflutningamaður HSN, Húsavík.
  5. Hilda Rós Pálsdóttir, 43 ára, umsjónarkennari Borgarhólsskóla, Húsavík.
  6. Áki Hauksson, 60 ára, framkvæmdastjóri Víkurrafs ehf., Húsavík.
  7. Hallur Lund, 47 ára, tæknistjóri Kaldvík hf., Húsavík.
  8. Gunnólfur Sveinsson, 52 ára, bifvélavirki Bílaleigu Húsavíkur ehf., Húsavík.
  9. Alexander Gunnar Jónasson, 34 ára, vélamaður Vegagerðinni, Húsavík.
  10. Helga Sigurbjörg S. Heide, 43 ára, húsmóðir og naglafræðingur, Húsavík.
  11. Monika Zyvatkauskaité, 26 ára, sérfræðingur umbóta PCC Bakka, Húsavík.
  12. Jónas Sævarsson, 58 ára, starfsmaður Skipaafgreiðslu Húsavíkur ehf., Húsavík
  13. Svava Steingrímsdóttir, 46 ára, sjúkraliði Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Húsavík.
  14. Önundur Kristjánsson, 26 ára, sjómaður, Húsavík.
  15. María Guðrún Jónsdóttir, 63 ára, ræstitæknir og verkamaður Heimamönnum ehf., Húsavík.
  16. Davíð Þórólfsson, 42 ára, trésmiður Sjóferðum Arnars ehf., Húsavík.
  17. Gunnar Björnsson, 60 ára, bóndi og fósturtalningamaður, Öxarfirði.
  18. Guðmundur A. Hólmgeirsson, 86 ára, framkvæmdastjóri og útgerðarmaður, Húsavík.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!