Libby Moore til liðs við Þór/KA

Stjórn Þórs/KA hefur samið við bandarísku knattspyrnukonuna Libby Mooreum að leika með liðinu út keppnistímabilið. Libby leikur á miðjunni og er ætlað að styrkja hópinn í stað leikmanna sem eru að fara í önnur verkefni. Þetta kemur fram á vef Þór/KA.
Libby er 25 ára miðjumaður og hefur nú þegar öðlast reynslu af því að spila í Evrópu eftir feril með háskólaliði sínu í Norður-Karólínu. Eftir flottan knattspyrnuferil með háskólanum í Norður-Karólínu 2019-2022 hefur hún komið við sögu hjá Fortuna Hjörring í Danmörku, Shelbourne á Írlandi og bandarísku liðunum Gotham og Lexington. Nú síðast var hún á mála hjá Þýska félaginu Turbine Potzdam, sem stuðningsfólk Þórs/KA ætti að kannast við frá viðureignum félaganna í Meistaradeild Evrópu hausti 2011.
Libby er mætt til Akureyrar og er spennt að koma inn í hópinn hjá Þór/KA. Aðspurð kveðst hún hafa heyrt vel talað um íslensku deildina.
„Ég á nokkrar vinkonur frá Bandaríkjunum sem hafa spilað í íslensku deildinni og þær hafa allar átt hér jákvæða upplifun. Ég veit að í ár er þetta mjög jöfn deild og hörð samkeppni, frá efstu sætum til þeirra neðstu svo hver einasti leikur verður erfiður. Ég er því spennt fyrir áskoruninni og spennt að komast á völlinn og gera mitt besta til að hjálpa liðinu,“ segir Libby Moore, tilbúin í nýjar áskoranir með Þór/KA í Bestu deildinni.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026





